NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR ORIGO VIÐ DALVEG

NÝJAR HÖFUÐSTÖÐVAR ORIGO VIÐ DALVEG

Origo og systurfélög þess innan Skyggnis hafa flutt í nýjar höfuðstöðvar að Dalvegi 30A í Kópavogi. Yrki arkitektar sáu um innanhússhönnun nýju höfuðstöðvanna, en þar starfa um 350 sérfræðingar sjö fyrirtækja: Origo, Syndis, Helix, Aftra, Corus, Datalab og Advise.

Húsnæðið var hannað út frá þörfum fyrirtækjanna, með sveigjanlegu og nútímalegu vinnuumhverfi og aðstöðu fyrir fundi, ráðgjöf, viðburði og dagleg samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila. Markmiðið er að efla samvinnu milli teyma og styðja við þróun stafrænna lausna.

Arkitektar hússins eru ASK arkitektar, eigandi þess er Íþaka og Eykt annaðist framkvæmdir. Frétt Origo um flutninginn má finna hér.