Yrki arkitektar ehf. hafa innleitt vottað gæðakerfi á grundvelli staðalsins ISO 9001.
Með ISO-9001 gæðastjórnunarkerfinu tryggjum við gæði þjónustu okkar, skilvirk samskipti við viðskiptavini og öflugt gæðaeftirlit á hönnun og öðrum verkefnum stofunnar.
Gæðakerfi Yrkis arkitekta er í samræmi við alþjóðlega gæðastaðalinn ISO-9001 og var vottað þann 4. júlí 2008 af þar til bærum aðila hérlendis, Vottun hf. Gæðakerfi Yrkis arkitekta hefur síðan þá staðist allar viðhaldsúttektir sem framkvæmdar hafa verið á kerfinu.
Yrki arkitektar ehf. er fyrsta arkitektastofan á Íslandi sem fær vottun á gæðakerfi sem byggt er upp samkvæmt ISO-9001.
Hvað er ISO 9001?
ISO 9001 er staðall fyrir gæðastjórnunarkerfi. Staðallinn tilgreinir kröfur sem fyrirtækið þarf að mæta til að þjónusta þess uppfylli kröfur viðskiptavina sinna og aðrar kröfur sem til þeirra eru gerðar, svo sem í lagalegu og fjárhagslegu tilliti. Árangur og öryggi eru lykilorð í uppbyggingu staðalsins.
Gæða- og umhverfisstefna Yrki arkitekta er:
- Að skapa verk sem bera vott um vandaða byggingarlist, skipulag og hönnun.
- Að þekkja þarfir viðskiptavinarins og taka mið af sjónarmiðum hans.
- Að vita hvað skiptir máli í rekstrinum til að ná árangri.
- Að Yrki sé þekkt að áreiðanleika í kostnaðarmarkmiðum.
- Að fylgjast með árangri fyrirtækisins um fagmennsku, þjónustugæði og annarra lykilþátta.
- Að lögð sé áhersla á starfsþróun, færni og umhverfisvitund starfsliðs til að ná árangri.
- Að viðbragðsáætlanir og umbótaferli séu til staðar ef eitthvað fer aflaga.
- Að faglegur metnaður sé undirstaða í verkum sem haldið er við með stöðugri þróun í hugmyndavinnu og þátttöku í samkeppnum.
- Að áhersla sé lögð á að verk okkar standist opinberar kröfur og ákvæði í lögum og reglugerðum.
- Að taka mið af umhverfisstefnu viðskiptavina og samstarfsaðila og vinna vistvænar lausnir í samræmi við óskir verkkaupa og fá vottun þar um (Breeam).
- Að haga störfum með hliðsjón af þeim áhrifum sem starfsemin hefur á umhverfið.
- Að kynningar á verkum Yrki séu markvissar og vandaðar og afli frekari verkefna.