RÁÐHERRAHEIMSÓKN Í NÁTTÚRUMINJASAFN ÍSLANDS

RÁÐHERRAHEIMSÓKN Í NÁTTÚRUMINJASAFN ÍSLANDS

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra heimsóttu Náttúruminjasafn Íslands í Nesi þann 27. maí síðastliðinn ásamt fulltrúum sinna ráðuneyta. Tilefnið var að nú eru framkvæmdir hafnar að nýju. Á staðnum voru einnig fulltrúar Náttúruminjasafnsins, Framkvæmdasýsslunnar – Ríkiseigna, Byggingarfélags E. Sigurðssonar og arkitektar hússins, Ásdís Ágústsdóttir og Sólveig Berg hjá Yrki arkitektum.