Um verkefnið: Hamranesskóli er nýr sameinaður leik- og grunnskóli í Hamranesi í Hafnarfirði, fyrir börn frá 12 mánaða til 16 ára aldurs. Skólinn er hannaður sem hjarta nýs hverfis. Auk kennslurýma verða þar frístundaheimili, félagsmiðstöð, útibú Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, hverfisbókasafn og hreyfisalur, ásamt rými fyrir samfélagsstarf hverfisins.
Yrki arkitektar hönnuðu skólann í alútboði með Ístaki. Hann er um 8.940 m² og verður tekinn í notkun í áföngum. Áætlað er að fyrstu bekkir hefji nám í byggingunni haustið 2027 og að skólinn verði fullbyggður árið 2028.
Flokkur: Opinber bygging
Tímabil: 2025-
Staða: Á framkvæmdarstigi
Staðsetning: Hafnarfjörður
Stærð: 8.940m²
Verkkaupi: Hafnarfjarðarbær
Þrívíddarvinnsla: Danielsen og Yrki Arkitektar
Verktaki: Ístak
Samstarfsaðilar: Danielsen Urban Landscape, Exa Nordic, Pascal, Raftákn, Öruggverk, Myrra





