UM VERKEFNIÐ
Selárlaug í Selárdal í Vopnafirði er ein af sögufrægustu sundlaugum landsins. Hún var byggð sumarið 1949, að mestu í sjálfboðavinnu félaga í Ungmennafélaginu Einherja, og stendur á bakka Selár. Laugin er hituð með vatni úr nærliggjandi lind og er vinsæl bæði meðal heimamanna og ferðamanna.
Yrki arkitektar vinna að endurnýjun laugarinnar fyrir Vopnafjarðarhrepp. Markmiðið er að bæta aðstöðuna en halda um leið í einstakan anda staðarins og tengsl laugarinnar við ána og landslagið.
FLOKKUR
Opinber bygging
TÍMABIL
2025 –
STAÐA
Á framkvæmdarstigi
STAÐSETNING
Vopnafjörður
STÆRÐ
–
VERKKAUPI
Vopnafjarðarhreppur
ÞRÍVÍDDARVINNSLA
Yrki Arkitektar
SAMSTARFSAÐILAR
Hnit, Verkhönnun


