NÁTTÚRUMINJASAFN ÍSLAND

UM VERKEFNIÐ

Árið 1994 hlutu Yrki Arkitektar 1. verðlaun í hönnunarsamkeppni fyrir tillögu sína að Læknaminjasafni á Seltjarnarnesi.
Árið 2022 var ákveðið að húsið skyldi framvegis hýsa Náttúruminjasafn Íslands.

Húsið verður framvegis miðstöð safnastarfsemi á sviði náttúruvísinda með áherslu á miðlun þekkingar með sýningum og kennslu. Þrír sýningarsalir eru í húsinu og í einum þeirra verða meðal annars beinagrind búrhvals og síðasta geirfuglinn á Íslandi til sýnis. Í húsinu er kennslustofa í náttúruvísindum þar sem tekið er á móti skólabörnum, en boðið verður upp á vettvangsferðir fyrir þau um næsta nágrennið við vesturodda Seltjarnarnessins. Fyrirlestrarsalur á fyrstu hæð hússins tekur fjörutíu manns, en í kjallaranum verður meðal annars rannsóknarstofa í náttúruvísindum. Skrifstofur Náttúruminjasafnsins eru í austurenda fyrstu hæðar. Einnig á fyrstu hæð er kaffistofa fyrir safnargesti með útsýni yfir vesturodda Nessins, Bakkatjörn og Seltjörn.

 

FLOKKUR
Opinber bygging

 

TÍMABIL
1997 – 2026 með hléum

 

STAÐA
Fullbyggt

 

STAÐSETNING
Seltjarnarnes

 

STÆRÐ
1360m²

 

VERKKAUPI
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið