08 mar Fyrsta deiliskipulag á Íslandi í sýndarveruleika á sýningu Verk og Vit 2018
Yrki arkitektar taka þátt í stórsýningunni Verk og Vit 2018 sem nú stendur yfir í Laugardalshöll. Þar er Reykjavíkurborg með vandaðan sýningarbás til kynningar á Borgarlínu. Yrki arkitektar hönnuðu stoppistöð Borgarlínu og byggð á Heklureit. Gestum gefst færi á að skoða það deiliskipulag í sýndarveruleika þar sem þeir geta upplifað að standa á stoppistöð Borgarlínu.
Yrki arkitektar nota slíkan búnað við hönnun á skipulagi þar sem byggðin er mótuð frá upplifun gangandi vegfarenda. Sjón er sögu ríkari!
Mynd af bás Reykjavíkurborgar þar sem Yrki arkitektar bjóða gestum upp á sýndarveruleika.
Vefur Verk og Vits 2018: https://verkogvit.is/
Um verkefnið Heklureitur: https://yrki.is/portfolio_page/heklureitur-husin-holtinu/