Hjúkrunarheimilið Suðurlandsbraut 66 tilnefnt til Menningarverðlauna DV

Hjúkrunarheimilið Suðurlandsbraut 66 tilnefnt til Menningarverðlauna DV

Í texta dómnefndar segir: Hjúkrunarheimilið í Mörkinni er afrakstur boðskeppni fyrir arkitekta um byggingu þjónustuíbúða og þjónustumiðstöðvar aldraðra og hjúkrunarheimilis. Hjúkrunarheimilið er á fjórum hæðum auk jarðhæðar sem er að hluta til niðurgrafin. Á efri hæðunum eru íbúðir, setustofur og fylgirými. Á neðstu hæðinni er aðalinngangurinn með móttöku, samkomusalur og salir og stofur undir kapellu, ásamt þjónusturými og skrifstofum.
Hjúkrunarheimilið er vandað og metnaðarfullt verkefni. Byggingin er staðsett innan stærra þjónustusvæðis sem, þegar lokið er, mun skapa samhangandi heild í umhverfinu. Mýkt í formi jarðhæðar tengist vel umhverfinu. Innanhúss er bjart og rúmgott og allur frágangur er til fyrirmyndar.