NÝR SKAGFJÖRÐSSKÁLI KOMINN Í ÞÓRSMÖRK

NÝR SKAGFJÖRÐSSKÁLI KOMINN Í ÞÓRSMÖRK

Nýr Skagfjörðsskáli Ferðafélags Íslands, sem Yrki arkitektar hönnuðu, er kominn á sinn stað í Langadal í Þórsmörk. Skálinn var smíðaður í einingum hjá SG-húsum á Selfossi, fluttur inn í Langadal 20. október og settur saman á um tveimur dögum á grunni gamla skálans frá 1954.

Nýi skálinn heldur útliti og anda forvera síns en innra skipulagi hefur verið breytt. Þar er nú betra eldhús, stærri matsalur, meira útsýni og salerni inni í húsinu. Unnið verður að innréttingum í vetur og stefnt er að opnun 17. júní 2027, á 100 ára afmæli Ferðafélags Íslands.

Fjallað var um skálann á mbl.is og má finna fréttina hér.