SAMIÐ UM FRAMLEIÐSLU BORGARLÍNUSTÖÐVA

SAMIÐ UM FRAMLEIÐSLU BORGARLÍNUSTÖÐVA

Betri samgöngur hafa samið við danska fyrirtækið HSM Industri A/S um framleiðslu og afhendingu 26 stöðva fyrir fyrstu lotu Borgarlínunnar, frá Krossamýrartorgi að Hamraborg. Hver stöð verður með tvo palla, einn í hvora akstursstefnu. Fyrsta stöðin verður sett upp í Reykjavík sem fyrirmynd fyrir framleiðsluna sem á eftir kemur, líklega við Nauthólsveg nálægt Háskólanum í Reykjavík.

Yrki arkitektar hafa unnið að þarfagreiningu og hönnun Borgarlínustöðvanna, en Yngvi Karl Sigurjónsson, arkitekt hjá Yrki, kynnti kröfur til stöðvanna og umhverfis þeirra á málþingi Reykjavíkurborgar í fyrra. Frétt Borgarlínunnar um samninginn má finna hér.