FRAMKVÆMDIR HAFNAR VIÐ HLEMMTORG

FRAMKVÆMDIR HAFNAR VIÐ HLEMMTORG

Framkvæmdir eru hafnar við endurgerð norðurhluta Hlemms, gatnamóta Snorrabrautar og Hverfisgötu og nýs torgs ásamt Borgarlínuleið og -stöð við Hlemmtorg. Á torginu verður aðeins umferð almenningssamgangna leyfð og aukið rými skapast fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Gert er ráð fyrir að þessum áfanga ljúki í lok árs 2027.

Yrki arkitektar unnu deiliskipulag við Hlemm og nágrenni á árunum 2019–2020, þar sem markmiðið var að stækka Hlemmtorg og styrkja það sem miðstöð almenningssamgangna og almenningsrými. Yrki unnu einnig deiliskipulag Borgarlínunnar fyrir Hlemm. Frétt Reykjavíkurborgar um framkvæmdirnar má finna hér.