Deiliskipulagsuppdráttur er sýnir skipulagssvæðið frá Snorrabraut til vesturs að Katrínartúni til austurs
Deiliskipulagsuppdráttur er sýnir skipulagssvæðið frá Snorrabraut til vesturs að Katrínartúni til austurs
DEILISKIPULAG VIÐ HLEMM OG NÁGRENNI
Um verkefnið: Nýtt deiliskipulag fyrir Hlemm og nágrenni sem fellir tvær eldri deiliskipulagsáætlanir úr gildi. Samhliða voru gerðar breytingar á mörkum aðliggjandi deiliskipulagsáætlanna. Tilgangur tillögunnar var að stækka Hlemmtorg með því að loka fyrir bílaumferð. Deiliskipulagið nær yfir Hlemm og aðliggjandi götur sem verða fyrir áhrifum vegna breytinga á umferðarstýringu í grennd við Hlemm.
Meginmarkmiðið er að gera Hlemmi hátt undir höfði sem mikilvæg miðstöð almenningssamgangna ásamt því að gegna nýju hlutverki sem matarmarkaður með möguleika á útiveitingaaðstöðu. Einnig að styrkja Hlemmtorg sem almenningssvæði með aðgengi fyrir alla.
Skipulagssvæðið afmarkast af Snorrabraut, Grettisgötu austan Snorrabrautar og Borgartúni að Katrínartúni. Meðal viðfangsefna eru umferðarskipulag innan skipulagssvæðisins, stækkun Hlemmtorgs og deiliskipulag fyrir tvo afmarkaða reiti innan svæðisins, það eru hinn svo kallaði Bankareitur sunnan Hlemms og götureiturinn vestan Hlemms að Snorrabraut.
Flokkur: Skipulag
Tímabil: 2019-2020
Staða: Skipulagsvinnu lokið
Staðsetning: Hlemmur og nágrenni, Reykjavík
Verkkaupi: Reykjavíkurborg
Þrívíddarvinnsla: Yrki arkitektar
Samstarfsaðilar: Hönnuðir nýs Hlemmtorgs, DLD í Reykjavík og Mandaworks, Stokkhólmi
Skuggavarp við Hlemm og mögulegt umfang nýbygginga
Bankareiturinn
Reiturinn á milli Hlemms og Snorrabrautar